Umhirða vöru

Hiti og rakastig

Almenn notkun - notkunar hitastig

TD Pilot geymist best í þurrum aðstæðum við stofuhita. Ráðlögð gildi fyrir hitastig og rakastig fyrir tækið eru sem hér segir:

Flutningur og geymsla

Ráðlegt er að tækið sé ekki flutt eða geymt í hita eða raka sem fellur utan eftirfarandi gilda:

TD Pilot er ekki vatnsheldur eða fullkomlega vatnsheldur. Tækið ætti ekki að vera þar sem er mjög rakt eða blautt. Ekki setja tækið ofan í vatn eða annan vökva. Passið að ekki hellist vökvi á tækið, sérstaklega ekki á tengisvæðum án I/O hlífanna á sínum stað.

Tækið er skráð sem IP-flokkur IP54.

IP flokkspassinn fyrir tæki eingöngu, með I/O hlífum á sínum stað. Millistykkisstilling er ekki innifalin.

Hreinsun á tækinu

  1. Fyrir hreinsun, slökkvið alveg á tækinu.
  2. Takið tækið úr sambandi.
  3. Fjarlægið allar snúrur.
  4. Þurrkaðu yfir alla ytri fleti með því að nota 70 prósent ísóprópýlalkóhólþurrku, 75 prósent etýlalkóhólþurrku eða Clorox sótthreinsunarþurrku fyrir sýkingarvörn.
  5. Leyfið tækinu að þorna náttúrulega.
  6. Einnig þarf að sótthreinsa alla fylgihluti á sama hátt.
  7. Ef að rákóttar leifar eru eftir þrif, pússið skjáinn með mjúkum, þurrum klút.
  8. Fargið öllum notuðum hreinsivörum almennilega.

Ekki nota úðavörur beint á tækið þar sem að þær geta gegnumbleytt tækið sem getur orsakað óæskilega rakamyndun inni í einingunni.

Ekki dýfa tækinu í neinn vökva.

Ekki nota neitt skordýraeitur á tækinu.

Uppstilling

Notið einungis festingar sem mælt er með af endursöluaðila á staðnum eða sölufulltrúa og passið upp á að þær séu festar og hertar samkvæmt leiðbeiningunum. Ekki leggja tækið á óstöðug og/eða ójöfn yfirborð.

Flutningur á TD Pilot tækinu

Aftengið allar snúrur úr TD Pilot þegar haldið er á tækinu.

Þegar þú flytur tækið vegna viðgerða, flutnings eða ferðalaga, skaltu nota umbúðirnar sem það kom í og tryggja að slökkt sé á TD Pilot tækinu.

Ráðlagt er að passa upp á umbúðirnar sem komu með TD Pilot.

Ef skila þarf tækinu til Tobii Dynavox vegna ábyrgðartengdra vandamála eða viðgerðar, er betra að nota upphaflegar eða samskonar umbúðir til að flytja það í. Flestir flutningsaðilar krefjast að minnsta kosti 5 sm þykks lags af umbúðaefni utan um tækið.

Athugaðu: Vegna reglna frá Joint Comission, þarf að farga öllu umbúðaefni þ.m.t. kössum sem sendir eru til Tobii Dynavox.

Rafhlöðunum fargað

Ekki farga rafhlöðunum með almennu heimilis- eða skrifstofusorpi. Fylgdu gildandi reglum um förgun á rafhlöðum.

Tækinu fargað

Ekki farga TD Pilot tækinu með almennu heimilis- eða skrifstofusorpi. Fylgdu gildandi reglum um förgun á rafmagns- og rafeindabúnaði.