Öryggi
TækiðTD Pilot hefur verið prófað og samþykkt sem í samræmi við allar forskriftir og staðla sem taldir eruFylgni upplýsingarupp í þessari handbók og í -- þar áTæknilýsingar meðal, en ekki takmarkað við, lækningatækjastöðlinn (flokkur 1/gerð B). Engu að síður, þarftu að hafa nokkrar öryggisráðstafanir í huga til að tryggja örugga notkun TD Pilot tækisins.
Allar alvarlegar atvik sem hafa átt sér stað í tengslum viðTD Pilotskulu tilkynntar framleiðandanum og viðeigandi yfirvöldum þess aðildarríkis þar sem notandinn og/eða sjúklingurinn hefur staðfestu.
Engar breytingar á þessum búnaði eru heimilaðar.
Viðgerðir á tækjum Tobii Dynavox mega eingöngu vera framkvæmdar af Tobii Dynavox eða viðurkenndu og samþykktu viðgerðarverkstæði Tobii Dynavox.
Frábending: Hvað notanda varðar þá ætti TD Pilot tækið ætti aldrei að vera eina leiðin til að miðla mikilvægum upplýsingum.
Ef bilun verður í TD Pilot tækinu getur notandinn ekki átt samskipti með því.
TD Pilot má ekki nota sem öryggistæki, og ekki má treysta á það ef svo skildi fara að það hætti að virka vegna rafmagnsleysis eða annarra ástæðna.
Hætta getur verið á köfnun ef litlir hlutir losna af TD Pilot tækinu.
Passa verður að TD Pilot tækið verði ekki fyrir eða veðurskilyrðum sem falla utan við tæknilýsingu TD Pilot tækisins.
TD Pilot tæki skal aðeins nota með TD Pilot sérstökum aukabúnaði sem hefur uppsetningarleiðbeiningar sem fylgja með aukabúnaðinum.
Hleðslusnúran getur skapað kyrkingarhættu fyrir ung börn. Aldrei má skilja lítil börn eftir eftirlitslaus með hleðslusnúrunni.
Ung börn og fólk með vitsmunalega skerðingu ætti ekki að hafa aðgang að, eða fá að nota, TD Pilot tækið án eftirlits foreldra eða umsjónarmanna.
Ef TD Pilot tækið bilar eða ESD atvik, endurræstu tækið.
Ekki festa skreytingar, límmiða, pappíra eða álíka á skjáhlið TD Pilot tækisins. Þetta getur truflað Eye tracking eða frammistöðu snertiskjás.
Aldrei beita afli til að þrýsta tengli inn í gátt. Ef ekki er hægt að setja tengilinn fremur auðveldlega í gáttina, passa þeir líklega ekki saman. Passaðu að tengillinn passi í gáttina og að þú hafir staðsett tengilinn rétt í samræmi við gáttina.
Varist varanlegar heyrnarskemmdir
Varanlegar heyrnarskemmdir geta átt sér stað ef notuð eru heyrnartól eða hátalarar með hljóðstyrkinn stilltan of hátt. Til að koma í veg fyrir þetta, ætti að hafa hljóðstyrkinn hæfilegan og öruggan. Með tímanum getur þú orðið ónæmur fyrir háum hljóðstyrk sem getur þá hljómað ásættanlegur en er engu að síður að skadda heyrnina. Ef þú upplifir einkenni eins og suð í eyrunum, skaltu lækka hljóðstyrkinn eða hætta að nota heyrnartól. Því hærri sem hljóðstyrkurinn er því minni tíma tekur að skemma heyrnina.
Heyrnarsérfræðingar leggja til að þú beitir eftirfarandi úrræðum til að verja heyrnina:
- Gætið þess að nota heyrnartólin ekki lengi með hljóstyrkinn stilltan hátt.
- Forðastu að hækka hljóðið til að blokka hávær hljóð í umhverfinu.
- Lækkaðu hljóðstyrkinn ef þú heyrir ekki í fólki tala í kringum þig.
Til að stilla á öruggan hljóðstyrk:
- Hafðu hljóðstyrkinn lágt stilltan.
- Hækkaðu smám saman í hljóðinu þar til það heyrist skýrt og án óþæginda eða truflana.
TD Pilot tækið getur framkallað hljóð á desibelsviði sem getur valdið heyrnarskerðingu hjá einstaklingum með eðlilega heyrn, jafnvel þegar hljóðið varir innan við mínútu. Hæsta hljóðstig einingarinnar er í takt við hljóðstigið sem heilbrigð ung manneskja getur framkallað þegar hún öskrar. Þar sem TD Pilot tækið er ætlað sem raddgervibúnaður þá fylgir því sami möguleiki og sama hætta á heyrnarskaða. Hærri desibelsviðin eru í boði til að hægt sé að eiga samskipti við háværar aðstæður og ætti að nota það af varúð og aðeins þegar hávært nærumhverfi krefst þess.
Rafmagn og rafhlöður
TD Pilot tækið notar litíumjónarafhlöður. Þessar rafhlöður hafa geymsluhitastig á bilinu -20 °C/-4 °F og 40 °C/104 °F innan 3 mánaða.
Færðu TD Pilot tækið og rafhlöðurnar í kaldara umhverfi til að hlaða rafhlöðurnar rétt.
Forðist að útsetja rafhlöðurnar fyrir eldi eða hitastigi yfir 50 °C/122 °F. Þessar aðstæður gætu valdið því að rafhlaðan bili, hitni, það kvikni í henni eða hún springi. Athugaðu að mögulegt er, í verstu tilvikum, að hiti verði hærri en það sem minnst er á að ofan í, t.d., skottinu á bíl á heitum degi. Þannig að, geymsla tækisins með rafhlöðum í heitu bílskotti gæti mögulega leitt til bilunar.
Ekki taka rafhlöðuna í sundur eða skemma hana. Fylgdu umhverfislögum og reglugerðum sem gilda á þínu svæði þegar þú fargar rafhlöðum.
Aðeins notandi má skipta um rafhlöðu með TDBW1 rafhlöðupakka sem seldur er af Tobii Dynavox. Sprengingarhætta er ef skipt er um rafhlöðu fyrir ranga gerð.
Til að tryggja örugga notkun TD Pilottækisins skaltu nota eingöngu hleðslutæki, rafhlöður og aukahluti sem eru samþykkt af Tobii Dynavox.
Ekki opna (nema rafhlöðulokið), eða breyta, kassanum utan um TD Pilot tækið eða aflgjafann, þar sem þú gætir orðið fyrir hættulegu raflosti. Tækið inniheldur enga hluta sem krefjast viðhalds. Ef TD Pilot vélbúnaður tækisins eða aukabúnaðar er skemmdur, Skaltu ekki nota það.
Ef rafhlaðan er ekki hlaðin og TD Pilot er ekki tengt við rafmagn, mun TD Pilot tækið slökkva á sér.
Ef rafmagnssnúran skemmist, hafðu samband við Tobii Dynavox til að fá nýja.
Ekki má tengja nein tæki með aflgjafa sem ekki er af læknisfræðilegum gæðum við tengi TD Pilot tækisins. Ennfremur þurfu allar stillingar að samræmast kerfisstaðal IEC 60601-1. Allir sem tengja viðbótarbúnað við merkjainntakshlutann eða merkjaúttakshlutann eru að setja upp sjúkrakerfi og bera því ábyrgð á að kerfið uppfylli kröfur kerfisstaðalsins IEC 60601-1. Einingin er eingöngu ætluð til að tengjast við IEC 60601-1 vottaðan búnað í sjúklingaumhverfi og IEC 60601-1 vottaðan búnað utan sjúklingaumhverfisins. Ef eitthvað er ekki skýrt skaltu hafa samband við tækniþjónustudeildina eða fulltrúa á staðnum.
Tengið fyrir tækið á rafmagnssnúrunni eða aðskiljanlega klóin eru notuð sem rafmagnsaftengingartæki, ekki staðsetja TD Pilot tækið þannig að erfitt sé að komast að aftengingarbúnaðinum.
Sérstakar reglur gilda um flutninga á litíumjónarafhlöðum. Ef þau detta, eru kramin, götuð, þeim kastað, illa farið með þau eða ef skammhlaup verður í þeim, þá geta þau gefið frá sér hættulega mikinn hita af vita þau losað skaðlegt magn hita og það kann að kvikna í þeim. Einnig fylgir þeim hætta í eldsvoða.
Ráðfærðu þig við IATA reglur þegar þú flytur litíummálm- eða litíumjónarafhlöður eða -hlöð: http://www.iata.org/whatwedo/cargo/dangerous_goods/Pages/lithium_batteries.aspx
Látið ekki rafhlöður vera óhlaðnar í langan tíma til að forðast djúpa sjálfhleðslu.
TD Pilot ætti aðeins að nota með aflgjafanumNGE60-TD.
Uppsetning
TD Pilot skal festa í samræmi við leiðbeiningar samþykktu festinganna sem notuð eru. Tobii Dynavox eða umboðsmenn þess eru ekki ábyrgir fyrir tjóni eða meiðslum á einstaklingi eða eignum hans vegna TD Pilot sem fellur úr uppsettri uppsetningu. Uppsetning TD Pilot er algjörlega á eigin ábyrgð eiganda.
Neyðaraðstæður
Ekki reiða þig á tækið fyrir neyðarsímtöl eða bankamillifærslur. Við ráðleggjum þér að skipuleggja fleiri en eina leið til að eiga samskipti í neyðaraðstæðum. Eingöngu má framkvæma bankamillifærslur með kerfi sem bankinn þinn hefur ráðlagt og uppfyllir staðla bankans.
Innrautt
TD Pilot gefur frá sér púlsað innrauða (IR) ljós frá augnmælanum. Önnur tæki sem er stjórnað af IR eða eru næm fyrir truflunum af IR-ljósi gætu orðið fyrir áhrifum af IR-ljósinu sem er sent frá TD Pilot. Ekki nota TD Pilot í nálægð slíkra tækja ef virkni þeirra er mikilvæg.
Flogaveiki
Sumt fólk með ljósnæma flogaveiki er útsett fyrir flogaköstum eða meðvitundarleysi þegar það sér vissar tegundir flassljósa eða ljósmynstra á hversdagslífinu. Það getur gerst jafnvel þó að manneskjan hafi enga sögu um flogaveiki eða hafi aldrei fengið flog.
Manneskja með ljósnæma flogaveiki gæti einnig upplifað vandamál í tengslum við sjónvarpsskjái, suma spilakassa og blikkandi flúorperur. Þeir einstaklingar gætu fengið flog þegar þeir horfir á vissar myndir eða mynstur á skjám, eða jafnvel þegar þeir verða fyrir ljósinu frá augnstýringu. Áætlað er að um 3-5% fólks með flogaveiki sé með þessa gerð ljósnæmrar flogaveiki. Margt fólk með ljósnæma flogaveiki upplifir „áru“ eða finnur fyrir skrítnum tilfinningum áður en flogakast hefst. Ef þér líður einkennilega á meðan á notkun stendur, skaltu færa augun frá augnstýringunni.
Rafmagn
Ekki opna kassann utan umTD Pilot tækið, nema rafhlöðulokið, þar sem þú gætir orðið fyrir hættulegu raflosti. Tækið inniheldur enga hluta sem krefjast viðhalds frá notanda.
Hugbúnaður
Annar hugbúnaður en sá sem er foruppsettur á TD Pilot er uppsettur á eigin ábyrgð notanda. Ytri hugbúnaður gæti valdið því að TD Pilot bili og gæti fallið utan ábyrgðar.
Öryggi barna
TD Pilot er háþróað tölvukerfi og rafeindatæki. Og því er það samsett af fjölmörgum aðskildum samsettum hlutum. Barn gæti mögulega tekið suma þessara hluta af tækinu, sem gæti valdið hættu á köfnun eða annarri hættu fyrir barnið.
Ung börn ættu ekki að hafa aðgang að, eða nota tækið án eftirlits foreldra eða umsjónarmanna.
Augnstýringu
Sumir gætu upplifað vissa þreytu (vegna áreynslu á augu og viðvarandi einbeitingar) eða jafnvel augnþurrk (vegna minni blikkunar) þegar þeir eru fyrst að venjast Eye tracking. Ef þú upplifir þreytu eða augnþurrk skaltu byrja hægt og takmarka hversu lengi þú notar Eye tracking þangað til þér líður vel með það.
Ef þörf krefur, ráðfærðu þig við heilbrigðisstarfsmann um notkun endurvettvætandi augndropa.
Þriðju aðilar
Tobii Dynavox tekur enga ábyrgð á afleiðingum sem hlýst af notkun á TD Pilot á þann hátt sem samræmist ekki ætlaðri notkun þess, þar með talið hvers kyns notkun á TD Pilot með hugbúnaði og/eða vélbúnaði þriðju aðila sem breytir ætlaðri notkun.